Carney boðar kaup á háþróuðum eftirlits- og öryggisbúnaði frá SAAB

Kanadastjórn hyggst kaupa flota eftirlitsflugvéla og -kerfi af sænska hergagnaframleiðandanum SAAB fremur en bandarískar Boeing-þotur. Forsætisráðherrann Mark Carney greindi frá þessu í gær og sagði GlobalEye-eftirlitskerfið sænska verða lykilatriði við eftirlit og varnir flughers Kanada á norðurslóðum.GlobalEye er eitt fullkomnasta ratsjár- og eftirlitskerfi fyrir flugvélar sem völ er á. Það getur greint hundruð skotmarka af öllum stærðum samtímis í allt að 650 kílómetra fjarlægð, á landi, í lofti og á legi.Carney hefur áður sagst vilja draga úr þörf Kanada fyrir samstarf við bandarísk hermálayfirvöld. Í yfirlýsingu frá SAAB segir að ákvæði fyrirhugaðs samnings geri ráð fyrir að fyrirtækið leggi fé til rannsókna og þróunar í Kanada. Carney tilgreindi hvorki hve margar flugvélar og eftirli
Carney boðar kaup á háþróuðum eftirlits- og öryggisbúnaði frá SAAB

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd