Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas drepinn í loftárás Ísraelshers

Ísraelsher segist hafa vegið Mohammed Odeh, nýjan leiðtoga hernaðararms Hamas, á þriðjudag. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu hersins og innri öryggisþjónustunnar Shin Bet. Ísraelsmenn hafa skipulega lagt til atlögu að leiðtogum Al-Qassam-sveitanna og Odeh er sá fjórði sem Ísraelsmenn segjast hafa fellt frá upphafi stríðsins á Gaza. Varnarmálaráðherrann Israel Katz sagði herinn hafa sent Odeh til fundar við samverkamenn sína í iðrum vítis. Ezzedine al-Haddad, forveri Odehs, var drepinn ásamt fjölskyldu sinni 15. maí. Hann var talinn lykilmaður í hryðjuverkaárásinni á Ísrael 7. október 2023. Í yfirlýsingu hernaðararmsins segir að eiginkona Odehs og þrjú uppkomin börn hafi einnig farist píslarvættisdauða í árás Ísraelshers. Þau voru borin til grafar í Gazaborg í gær. Ísrael ræður
Nýskipaður leiðtogi hernaðararms Hamas drepinn í loftárás Ísraelshers

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd