Bandaríkjaher gerði árás á hernaðarleg skotmörk í Íran

Bandaríkjaher hefur gert árásir á hernaðarleg skotmörk í Íran, öðru sinni í þessari viku. Reuters hefur eftir talsmanni hersins að talið væri að honum og skipum á Hormússundi stafaði hætta af viðkomandi herstöð.Hann segir nokkra íranska dróna hafa verið skotna niður og sprengingar hafa kveðið við nærri hafnarborginni Bandar Abbas sem stendur við sundið. Íranskir miðlar segja loftvarnarkerfi hafa verið virkjuð skamma stund.Donald Trump Bandaríkjaforseti varaði stjórnvöld í Óman við afleiðingum afskipta af skipaferðum um Hormússund. Talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins sagði í gær að Bandaríkin hefðu ekkert með stjórnun sundsins að gera.Íranir ættu að annast skipulagið í samvinnu við Ómana. Trump sagði sundið alþjóðlega siglingaleið, opna öllum. „Ráðamenn í Óman verða að hegða sér eins o
Bandaríkjaher gerði árás á hernaðarleg skotmörk í Íran

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd