Enn ósamið um hvernig ljúka eigi umræðunni — þingfundur í fyrramálið

Enn er ósamið á Alþingi um hvernig ljúka eigi umræðunni um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra varðandi framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Boðað hefur verið til þingfundar í fyrramálið.RÚV / Ragnar VisageÞingfundi lauk klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nótt eftir að þingmenn Miðflokksins ræddu sín á milli um þingsályktunartillöguna og aðildarumsóknina. Sú breyting var gerð á dagskrá þingsins eftir fund í forsætisnefnd í kvöld að þingfundur hefst klukkan hálf ellefu í fyrramálið. Dagurinn var ætlaður til nefndastarfa samkvæmt starfsáætlun, sem færast yfir á laugardag.
Enn ósamið um hvernig ljúka eigi umræðunni — þingfundur í fyrramálið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd