Nýliðar fengu þjálfun í Ráðhúsinu

Nýliðar í borgarstjórn sóttu námskeið í Ráðhúsinu í dag til að koma sér inn í starfið. Helga Björk Laxdal, skrifstofustjóri borgarstjórnar, segir að farið sé yfir ýmislegt„Alveg frá því hvenær nefndir eru að funda, hvenær maður mætir, hvað þau fá í laun, hvernig maður sækir um sumarbústað borgarstjórnar og alveg yfir í tiltölulega stórar og fræðilegar spurningar eins og hlutverk sveitarfélaga og lögbundin verkefni og svo framvegis,“ segir hún.Flestir borgarfulltrúar sem fréttastofa ræddi við kváðust spenntir að hefja störf.„Ég held að vísu að ég sé of gamall til að læra eitthvað en ég hef auðvitað einhverja reynslu, ég hef nú verið á þingi og verið í forsætisnefnd þar og ég held ég kunni nú eitthvað, segir Brynjar Níelsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Nýliðar fengu þjálfun í Ráðhúsinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd