Ættstofn einhverrar sjaldgæfustu páfagaukategundar heims, kākāriki karaka, hefur vaxið stórlega síðustu tvö ár, ekki síst vegna dugnaðar parsins Trixie og Nacho sem eiga heima á Nýja-Sjálandi.Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru þar í landi, hún er í mikilli útrýmingarhættu og tvisvar hefur hún verið talin útdauð. Um það bil 450 fugla er að finna á sérstökum griðastöðum og hættulausum svæðum í náttúrunni.Starfsfólk griðastaðar í Christchurch kynnti þau Nacho og Trixie hvort fyrir öðru árið 2024 og síðan þá hefur parið eignast saman 55 unga, þar af 33 á þessu ári einu saman. Leigh Percasky, stjórnandi griðastaðarins, hrósar báðum foreldrum í hástert.Ofurmamman Trixie haldi áfram að verpa og ala upp unga þrátt fyrir að fengitímanum sé lokið þótt best væri að hún tæki sér smá andrými. Pabbi