Aðstoðarmaður Matthew Perry dæmdur í fangelsi

Kenneth Iwamasa, persónulegur aðstoðarmaður bandaríska leikarans Matthew Perry, hefur verið dæmdur í 41 mánaðar fangelsi fyrir aðild sína að dauða hans. Iwamasa er sá fimmti sem er ákærður í málinu.Perry fannst látinn í heitum potti á heimili sínu í Los Angeles í október 2023. Krufning leiddi í ljós að hann hafi látist af völdum ketamínneyslu, drukknunar og kransæðastíflu.Iwamasa sprautaði Perry með ketamíni og útvegaði honum, í samvinnu við tvo lækna, meira en 50 þúsund dollara virði af lyfinu vikurnar fyrir andlát hans. Iwamasa hafði enga læknisfræðilega menntun.Í ágúst 2024 játaði hann sök í einum ákærulið er varðaði samsæri um dreifingu á ketamíni sem leiddi til dauða Perry. Átti hann þá yfir höfði sér allt að 15 ára fangelsi auk þess að vera dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið eftirli
Aðstoðarmaður Matthew Perry dæmdur í fangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd