Mörg börn búa við krefjandi aðstæður og þarfir þeirra eru miklu meiri en hjálparsamtök geta annast, að sögn framkvæmdastjóra UNICEF. Þjóðarleiðtogar þurfi að koma saman og gera betur fyrir börn heimsins.„Ég tel þetta mjög erfiðan tíma í heiminum til að vera barn,“ segir Catherine Russell, framkvæmdastjóri UNICEF. Hún er stödd hér á landi á ársfundi leiðtoga landsnefnda UNICEF og tók þátt í pallborðsumræðum með Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands í dag.Eitt af hverjum fimm börnum í heiminum býr við stríðsátök. Það eru um 520 milljónir barna. Ef þau væru íbúar eins ríkis væri það þriðja fjölmennasta ríki heims, á eftir Kína og Indlandi. Helmingur barna í heiminum býr í löndum þar sem hætta vegna loftslagsbreytinga er til staðar.„Þess vegna er staða barna mjög, mjög alvarleg. Við hjá UNICEF ge