Hver verða laun nýrra kjörinna bæjarstjóra á Akureyri og í Reykjanesbæ?

Bæði á Akureyri og í Reykjanesbæ munu kjörnir fulltrúar taka við starfi bæjarstjóra um mánaðamótin. Berglind Ósk Guðmundsdóttir tekur við af Ásthildi Sturludóttur á Akureyri og Vilhjálmur Árnason tekur við af Kjartani Má Kjartanssyni í Reykjanesbæ.Í báðum sveitarfélögum hefur bæjarstjórinn verið ráðinn út fyrir raðir bæjarfulltrúa um nokkurt skeið. Ásthildur Sturludóttir hefur haft 3.144.438 krónur í mánaðarlaun og Kjartan Már Kjartansson 2.872.306 krónur. Ráðningasamningar nýrra bæjarstjóra munu liggja til samþykktar hjá bæjarráði á fyrstu fundum þeirra í upphafi júní en ekki er ljóst hvort að launatölur verði þær sömu hjá Berglindi og Vilhjálmi og forverum þeirra. BÆJARFULLTRÚAR Á AKUREYRI OG Í REYKJANESBÆ ERU Á FÖSTUM LAUNUM Bæjarfulltrúar í stærri sveitarfélögum fá greidd föst mánað
Hver verða laun nýrra kjörinna bæjarstjóra á Akureyri og í Reykjanesbæ?

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd