Vonir glæddust í dag um friðarsamkomulag á milli Bandaríkjanna og Íran. Ríkisfjölmiðlar í Íran fullyrtu að þeir hefðu komist yfir samningsdrög á milli landanna. Meðal þess sem samningurinn átti að fela í sér var að yfirvöld í Íran opnuðu fyrir skipaumferð um Hormússund á ný og í staðinn yrði herlið Bandaríkjanna dregið frá svæðinu ásamt því að hafnbanni yrði aflétt. Olíuverð féll um nærri fimm prósent á mörkuðum í dag eftir að fréttir af samningnum birtust. Stjórnvöld í Washington voru fljót að segja samninginn uppspuna frá rótum og sendu frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum þar sem sagt var að ekki væri hægt að treysta neinu sem fram kæmi í írönskum fjölmiðlum. Stjórnvöld í Íran fullyrtu í dag að ósennilegt væri að allsherjarátök myndu brjótast út að nýju. Friðarviðræður á milli Bandarík