Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu landeigenda þriggja jarða í sveitarfélaginu Vogum um að ákvörðun um eignarnám á landi þeirra yrði felld úr gildi. Með þessu staðfestir Hæstiréttur í dag dóm Landsréttar og Héraðsdóms Reykjaness.Íslenska ríkið fékk heimild til eignarnáms á svæðinu árið 2024. Þar hyggst Landsnet leggja Suðurnesjalínu 2 í lofti að hluta um jarðirnar. Forstjóri Landsnets hefur sagt að línunni sé ætlað að stuðla að auknu raforkuöryggi og flutningsgetu á Reykjanesskaga.RÚV / Ragnar Visage