„Ég er ánægð að Miðflokkurinn var ekki með í þessum meirihluta en ég hef áhyggjur af hægri áherslum hérna í borginni. Ég hef lýst því áður að mér finnst þetta skárri kosturinn,“ segir Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í Reykjavík.„Það er náttúrlega áhyggjuefni að það er ekki komin nein útlistun á því hvernig þau ætla að haga húsnæðismálunum,“ bætir hún við. HEFUR ÁHYGGJUR AF STARFSFÓLKI Í SORPHIRÐU Hún segir að enn sem komið er séu áherslur meirihlutans ekki mjög ítarlegar. Til dæmis sé lítið minnst á skólamál í því sem fram er komið.„Við þurfum að fylgjast vel með hvernig það verður nánar útfært. Þau segjast vilja bæta stoðþjónustuna en ekki beint hvernig,“ segir hún. „En við erum alltaf með varann á og verðum vakandi fyrir áherslum sem eru ekki í hag almennings.“Lí