Enn langt í land í viðræðum Icelandair og flugmanna

Ríkissáttasemjari segir enn langt í land í kjaraviðræðum Icelandair og flugmanna. Fundur fór fram í dag og hefur Ríkissáttasemjari beðið bæði flugmenn og Icelandair að tjá sig ekki við fjölmiðla um kjaraviðræðurnar utan þess sem nauðsynlegt geti talist.Boðað hefur verið aftur til fundar klukkan 10:00 á morgun.Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir lítið hægt að segja til um hvað fram fór á fundinum.„Þetta eru áframhaldandi tilraunir til að koma samtalinu af stað,“ segir hann. „Það er verið að tala saman um flugvakt og hvíldartíma og alls konar atriði sem varða grundvallaratriði í kjarasamningum og annar hvor aðilinn telur þörf á miklum breytingum,“ segir Ástráður.„Það eru ekki sammæli um hvaða breytingar það eiga að vera,“ segir hann.Ekki hefur enn verið boðaður annar fundur í kjaravi
Enn langt í land í viðræðum Icelandair og flugmanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd