Bændur á Austurlandi og Norðurlandi hafa verið hvattir til að huga að lömbum sínum næstu daga vegna norðaustanhrets sem væntanlegt er á morgun. Gul veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir Norðurland eystra, Austfirði, Miðhálendi og Austurland að Glettingi og þá hefur lögreglan á Norðurlandi vestra beint tilmælum til bænda.