Mehrawit Tesfaslase, eftirlifandi eiginkona fyrsta plastbarkaþegans Andemariams Beyene, segist ekki hafa fengið neina afsökunarbeiðni eða skaðabætur frá sænska ríkinu. Þess vegna segist hún vera sérstaklega þakklát fyrir það að einhver opinber aðili hafi loksins staðfest að mistök hafi verið gerð í plastbarkamálinu. Þetta segir Mehrawit í svörum til fréttastofu þegar hún er spurð um dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið væri skaðabótaskylt gagnvart henni og sonum hennar í plastbarkamálinu.Fréttastofa óskaði eftir viðtali við Mehrawit um dóminn. Hún segist ekki treysta sér í útvarpsviðtal þar sem henni þyki of sársaukafullt að ræða málið og að ef hún gerði það myndi hún ekki geta sofið. Þess vegna vilji hún bara lát