VR, LÍV og fagfélögin fordæma vaxtahækkanir viðskiptabankanna sem tilkynntar voru fyrir helgi í kjölfar þess að peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði stýrivexti um 25 punkta og standa því í 7,75 prósentum. Þau krefjast þess að bankarnir dragi vaxtahækkanir til baka svo kjarasamningar haldist.