Saknar húsnæðismálanna í áherslum meirihlutans

Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins og fráfarandi forseti borgarstjórnar, segir að það sé sláandi að nýr meirihluti hafi ekki minnst á húsnæðismál og húsnæðisuppbyggingu í lykiláherslum sem kynntar voru í dag. „Það er mjög mikilvægt að byggja fyrir fólk í þörf þannig að það hafi öruggt húsaskjól. Það er ekkert að finna um það í þessum áherslum,“ segir hún.Sanna kveðst ekki spennt fyrir áherslum nýs meirihluta. „Sem vinstrimanneskja þá er maður auðvitað ekkert spenntur fyrir hægristjórn.“ Í áherslunum er meðal annars talað um að bjóða út sorphirðu í borginni, sem Vinstrið leggst gegn. „Við vitum að það er alltaf óhagkvæmara fyrir íbúa,“ segir Sanna. VONAR ÞAÐ BESTA Hún segir þó gott að tryggja eigi að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu frístundastarfi.„En maður veltir því
Saknar húsnæðismálanna í áherslum meirihlutans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd