Nokkur breyting varð á meirihlutum á Norðurlandi í kjölfar sveitarstjórnarkosninganna og eru meirihlutaviðræður ýmist búnar eða langt á veg komnar. Nýir meirihlutar eru á Akureyri, í Norðurþingi, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð og í Skagafirði svo dæmi séu tekin.Í Skagafirði ganga viðræður Sjálfstæðisflokks og Byggðalistans vel. Von er á fregnum þaðan fyrir helgi. Í samtali við fréttastofu vildi Magnús Barðdal, oddviti Sjálfstæðismanna, ekkert gefa upp varðandi sveitarstjóra en Sigfús Ingi Sigfússon var ráðinn sveitarstjóri af Framsóknarflokknum árið 2018. Í fyrsta sinn í áratugi verður Framsóknarflokkurinn ekki í meirihluta í Skagafirði.Í Fjallabyggð er töluverðra breytinga að vænta. Nýr meirihluti Jafnaðarmanna og H-lista er í burðarliðnum og er frétta að vænta í dag eða á morgun. Helgi Jóhan