Þrátt fyrir samdrátt í bolfisksafla þá þýddi hátt afurðaverð að rekstrarhagnaður Brims á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem var talsvert yfir væntingum greinenda, var sá næstmesti í sögu félagsins. Hlutabréfaverð Brims er núna í hæstu hæðum en stjórnendur segja að horfur framundan séu „blendnar“.