30 drepnir í loftárásum Ísraela í Suður-Líbanon

Yfir þrjátíu voru drepnir í loftárásum Ísraela á Suður-Líbanon í gær og minnst fjörutíu særðust. Ísraelsher hefur hert mjög árásir og í morgun kom til átaka milli ísraelskra hermanna og liðsmanna Hezbollah í suðurhluta Líbanons. Hezbollah-samtökin í Líbanon greindu í morgun frá því að komið hefði til skotbardaga milli liðsmanna þeirra og ísraelskra hermanna í bænum Zawtar al-Sharqiah, norðanmegin við Litani-ána og það svæði sem Ísraelsher kallar öryggissvæði á landamærum ríkjanna. Hezbollah segist hafa gert árásir á ísraelska hermenn og skriðdrekasveitir í Suður-Líbanon. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tilkynnti í gær að hert hefði verið á hernaðaraðgerðum á svæðinu. Fjölmennt herlið hefði sölsað undir sig víðfeðm landsvæði með það að markmiði að vernda byggðir í norðanverðu
30 drepnir í loftárásum Ísraela í Suður-Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd