Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað.