Framlengja samstarfið í Múlaþingi

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn framlengdu í hádeginu meirihlutasamstarf sitt í bæjarstjórn Múlaþings. Málefnasamningur þeirra var undirritaður í Sláturhúsinu á Egilsstöðum í hádeginu.Jónína Brynjólfsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins, segir að stærsta hagsmunamálið sé að berjast fyrir samgöngubótum. Í málefnasamningnum er sér kafli um hagsmunabaráttu sveitarfélagsins út á við.„Samstarfið gekk rosalega vel á síðasta kjörtímabili og meirihlutinn bætir við sig. Sjálfstæðismenn bæta við sig manni. Það var auðséð að við myndum hefja fyrsta samtal. Það gekk ljómandi vel.“ MÚLAÞING – LOKATÖLUR Lokatölur frá 17. maí 2026 kl. 02:32 Nánari greiningu má finna á ruv.is/kosningar.
Framlengja samstarfið í Múlaþingi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd