Áætlaðar hagræðingaraðgerðir ráðuneytanna ellefu nema samtals um 14,7 milljörðum króna. Þetta er meðal þess sem lesa má úr svörum ráðherra við fyrirspurn Árna Helgasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins.Fyrirspurnin sneri að hagræðingu hvers ráðuneytis á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning. Annars vegar var spurt um þá hagræðingu sem þegar hefur náðst og hins vegar áætlaða hagræðingu árið 2026. Hvað er starfshópur forsætisráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri Þann 2. janúar 2025 efndi ríkisstjórnin til samráðs við almenning um hagsýni í ríkisrekstri. Um 4.000 umsagnir með yfir 10.000 tillögum bárust. Einnig var óskað eftir tillögum frá forstöðumönnum hjá ríkinu og öllum ráðuneytum.Forsætisráðherra skipaði hagræðingarhóp 21. janúar sem