Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal vegna mengunar sem hefur orðið vart í Varmá. Umhverfisstofnun stöðvaði framkvæmdirnar tímabundið í síðustu viku en leyfði þær aftur eftir úrbætur. Þegar úrbæturnar skiluðu ekki tilætluðum árangri gaf Umhverfisstofnun Veitum frest þar til í dag til að bregðast við.Jarðvegsmengun frá borframkvæmdunum hefur orðið til þess að Varmá hefur skipt litum síðustu daga.Í tilkynningu frá Veitum segir að borframkvæmdir hafi verið stöðvaðar meðan unnið er að mótvægisaðgerðum. Þar segir að óháðir sérfræðingar verði fengnir til að meta áhrif af framkvæmdunum á Varmá og Varmárósa.