„Við ætlum okkur að hafa festu og vinnufrið“

„Það er búið að vera mikið rót. Við ætlum okkur að hafa festu og vinnufrið svo við getum látið verkin tala,“ segir Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjóri í Reykjavík. Hún segir litla þörf hafa verið fyrir málamiðlanir í viðræðum um nýjan meirihluta í borgarstjórn sem kynntur var í dag.„Við ætlum að vinna hratt, ganga rösklega til verks,“ segir Hildur. Nýr meirihluti hyggst, að hennar sögn, taka stórar ákvarðanir í samgöngumálum, skipulagi nýrra hverfa og hagræðingu.Fyrsta verk hennar sem nýr borgarstjóri verður að eiga samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun og fjármögnun samgöngusáttmálans. Þá ætlar hún að ganga rösklega til verks í hagræðingu og auglýsa strax eftir samtali við vinnustaði um opnun daggæslu og leikskóla.Hildur Björnsdóttir, verðandi borgarstjór
„Við ætlum okkur að hafa festu og vinnufrið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd