Áætla að hefja framkvæmdir við námsgarða í júlí

Útboð á vegum Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri fyrir námsgarða við Háskólann á Akureyri hófst í síðustu viku. Byggja á þrjár fjögurra til fimm hæða blokkir við háskólann með 126 rýmum sem allt að 170 manns geta búið í.„Það hefur verið mikil þörf fyrir á síðustu árum. Þetta eru sem sagt þrjár byggingar við Norðurslóð. Heildarstærðin er um 6700 fermetrar. Þetta eru 62 litlar íbúðir, sem sagt stúdíó og tveggja herbergja íbúðir og 64 einstaklingsherbergi,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmastjóri FÉSTA.Mikill áhugi er á uppbyggingunni að sögn Jóhannesar, útboðið er opið til 23. júní:„Já við nefninlega höfum fundið fyrir miklum áhuga. Bæði af þessum stóru verktökum fyrir norðan og þessum stóru verktökum á landinu, eða höfuðborgarsvæðinu. Við vorum áðan með kynningarfund þar sem þes
Áætla að hefja framkvæmdir við námsgarða í júlí

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd