Þeir Keir Starmer og Donald Tusk, forsætisráðherrar Bretlands og Póllands, undirrita í dag nýjan gagnkvæman varnarsamning að því er segir í tilkynningu frá breskum stjórnvöldum. Sá síðarnefndi er væntanlegur til Lundúna í dag.Samkvæmt ákvæðum samningsins munu ríkin berjast sameiginlega gegn skipulagðri glæpastarfsemi, styrkja varnir, verja landamæri landanna og auka samvinnu við Evrópusambandið. Starmer segir ríkin nú þegar trausta samherja en þau bönd þurfi að herða enn í ljósi þeirra áskorana sem blasi við Evrópu. „Þessi samningur er stærsta skrefið sem okkar kynslóð stígur fram á við varðandi öryggis- og varnarsamband við Pólland,“ segir Starmer.Með samkomulaginu geti ríkin tekist á við öryggisvá nútímans, sem erfiðara sé að greina en hættur fortíðar en séu ekki síður geigvænlegar. Same