Utanríkisráðherrann biður heimsbyggðina um liðsinni við að koma í veg fyrir frekari hörmungar

Bruno Rodriguez Parrilla utanríkisráðherra Kúbu hefur biðlað til heimsbyggðarinnar um liðsinni svo koma megi í veg fyrir að frekari hörmungar skelli á landinu.Kúba hefur mátt þola hafnbann Bandaríkjanna á olíu frá Venesúela mánuðum saman, sem skapað hefur djúpa orkukreppu ofan á bágt efnahagsástand sem varað hefur um árabil vegna viðskiptaþvingana.Matvæla- og lyfjaskortur er landlægur og raforkukerfið er komið að fótum fram. Rodriguez Parrilla ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í gær og sagði tíma til kominn að alþjóðasamfélagið standi með Kúbu.„Ég hvet alþjóðasamfélagið til að sameinast svo koma megi í veg fyrir mannúðarvoða af völdum hafnbanns eða vopnaskaks,“ sagði Rodriguez.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur iðulega gefið í skyn að hernaðarárás verði gerð á Kúbu og utanríkisráðhe
Utanríkisráðherrann biður heimsbyggðina um liðsinni við að koma í veg fyrir frekari hörmungar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd