Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur beðið samningamenn Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna um að tjá sig ekki um efni kjaraviðræðna við fjölmiðla, umfram það sem nauðsynlegt er. Vísir greinir frá þessu og hefur eftir Ástráði að enn sé langt í land í viðræðunum.Boðað hefur verið til fundar í kjaradeilunni klukkan tíu árdegis. Kjarasamningar Icelandair við flugmenn og Flugvirkjafélag Íslands runnu út í septemberlok og eru á borði ríkissáttasemjara.Ekki hefur verið boðað til nýs fundar með flugvirkjum eftir að fundi var frestað í gær vegna veikinda.Deila Icelandair við Flugfreyjufélag Íslands er ekki komin til sáttasemjara. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, hefur sagt af og frá að flugmenn ástundi óformlegar verkfallsaðgerðir líkt og stjórnendur Icelandair hafa ýjað að.Ma