Sjálfvirk lendingarför, skynvæddir drónar og öflug farartæki fyrir tunglfara eru meðal þess búnaðar sem bandaríska geimferðastofnunin NASA hefur gert heyrinkunnugan. Þeim fyrrnefndu er ætlað að rannsaka og kortleggja harðneskjulegt yfirborð tunglsins áður en mannaðar ferðir hefjast og flytja þangað nauðsynlegan vísindabúnað.NASA stefnir að 25 ómönnuðum ferðum fram til 2029 sem ætlað er að bera fjögur rúmtonn af búnaði til tunglsins. Farartækin, kraftmiklir jeppar, eiga að geta flutt tunglfarana langar vegalengdir um hrjóstrugan mánann.Blue Origin, geimferðafyrirtæki Jeffs Bezos, Intuitive Machines og Astrobotic verða meðal annarra fengin til smíðinnar. Hins vegar hafa orðið tafir á hönnun og byggingu tunglfars SpaceX, fyrirtækis Elons Musk.Geimferðastofnunin tilkynnti í mars að 20 milljörð