Ísraelsher herðir enn atlögur að Suður-Líbanon

Yfir þrjátíu voru drepnir í loftárásum Ísraela á Suður-Líbanon í gær og minnst fjörutíu særðust, að sögn líbanska heilbrigðisráðuneytisins. Ríkisfréttastöðin NNA segir tvö börn og þrjár konur meðal hinna látnu. Reuters hefur eftir líbönskum öryggissveitum að Ísraelsher hefði gert yfir 120 loftárásir á einum degi, bæði í landinu sunnan- og austanverðu. Það eru þyngstu atlögur Ísraela um nokkurra vikna skeið. Hezbollah-hreyfingin segist hafa gert árásir á ísraelska hermenn og skriðdrekasveitir í Suður-Líbanon. Ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú tilkynnti í gær að hert hefði verið á hernaðaraðgerðum í Suður-Líbanon. Fjölmennt herlið hefði sölsað undir sig víðfeðm landsvæði með það markmið að vernda byggðir í Líbanon norðanverðu. Viðkvæmt vopnahlé hefur staðið milli Ísraels og Líb
Ísraelsher herðir enn atlögur að Suður-Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd