„Ástríða og endalaus ævintýri“

Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, myndlistarkona og búninga- og leikmyndahönnuður, var sæmd heiðursverðlaunum Sviðslistasambands Íslands á Grímuverðlaununum í kvöld, fyrir framúrskarandi og ómetanlegt framlag sitt til íslenskra sviðslista.Þórunn uppskar mikið lófatak og fögnuð er hún gekk upp á svið Þjóðleikhússins til að veita verðlaununum viðtöku.„Fyrst og fremst er þetta búinn að vera dásamlegur tími, ástríða og endalaus ævintýri,“ sagði hún og þakkaði kærlega fyrir sig.„Ég er náttúrulega svo ótrúlega lánsöm, ég er orðin svo djöfull gömul. Ég er búin að sjá svo mikið og gera svo mikið,“ sagði Þórunn. Hún rifjaði upp búsetu sína í Englandi í ræðu sinni, talaði um listasöfnin þar sem hún gat skoðað listaverk, gamla búninga og skart. „Svoleiðis lærði ég á períódurnar,“ sagði hún og bætti við a
„Ástríða og endalaus ævintýri“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd