Gert er ráð fyrir tjörn, skautasvelli, hlaupabraut, útivistarsvæðum, verslun og þjónustu í vinningstillögu um framtíðarskipulag á Akureyrarvelli og nágrenni. Lagt er til að allt að sjötíu íbúðir rísi á svæðinu en framtíð þess hefur lengi verið þrætuepli í höfuðstað Norðurlands. Akureyrarvöllur var áður helsti íþróttaleikvangur bæjarins og liggur norðan við miðbæjarsvæðið.