Enginn karlmaður starfar hér á landi sem ljósmóðir en formaður Ljósmæðrafélagsins segist endilega vilja sjá karlmenn í starfinu. Karlmenn víða erlendis starfi sem ljósmæður.Um 130 ljósmæður af öllu landinu sátu nýlega ráðstefnu á Selfossi á sérstökum ljósmæðradegi, þar sem fjölmörg erindi voru haldin. Mikil á ánægja var með daginn en ljósmóðurfræði hefur verið kennd við Háskóla Íslands í um 30 ár. En staðreyndin er sú að konur sækja bara í námið, engir karlmenn.Hvað segir formaður Ljósmæðrafélagsins við því?„Það vantar ljósmæður á Íslandi og í heiminum öllum vantar milljón ljósmæður,” segir Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Íslands.En hafa karlmenn einhvern tímann lært að vera ljósmæður?„Ekki hérna á Íslandi, nei, ekki í formlegu námi en það voru karlmenn sem lærðu af