Uppskeruhátíð íslenskra sviðslista var í kvöld þegar Grímuverðlaunin voru afhent með pompi og prakt á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Óresteia eftir Benedict Andrews og Lína langsokkur í leikstjórn Agnesar Wild tóku heim flest Grímuverðlaun á hátíðinni í kvöld. Þjóðleikhúsi setti báðar sýningarnar upp.Gríski harmleikurinn Óresteia eftir Benedict Andrews er bæði sýning og leikrit ársins 2026. Nína Dögg Filippusdóttir hlaut verðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir túlkun sína og Elín Hansdóttir fyrir leikmynd ársins.Barnasýning ársins er Lína langsokkur og hlaut Agnes Wild verðlaun sem leikstjóri ársins. Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson hlutu saman verðlaun sem bestu leikarar í aukahlutverki og Eva Björg Harðardóttir var verðlaunuð fyrir búninga ársins.Óperan Sæmundur fróð