Pólitískar aðgerðanefndir sem sumar hafa tengsl við innanbúðamenn í Repúblikanaflokknum hafa dælt fúlgum fjár í forvöl innan Demókrataflokksins. Fúlgurnar hafa farið í að bæta stöðu frambjóðenda sem þykja umdeildir innan Demókrataflokksins og ólíklegir til að standa sig vel í almennum kosningum.