Meirihlutasamstarf S-lista og D-lista undirritað í Suðurnesjabæ

Bæjarfulltrúar S-lista, Samfylkingar og óháðra og D-lista, Sjálfstæðisflokks og óháðra hafa komist að samkomulagi um samstarf á kjörtímabilinu 2026-2030. Samkomulagið, sem byggir á stefnuskrám beggja framboða, var undirritað af kjörnum fulltrúum í Samkomuhúsinu í Sandgerði í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýja meirihlutanum.Tvö af fyrstu verkefnum nýrrar bæjarstjórnar verða að undirbúa fyrsta fund hennar, sem er áætlaður 3. júní, og að auglýsa stöðu bæjarstjóra strax á næstu dögum.Í samkomulaginu er áhersla lögð á að styrkja stöðu Suðurnesjabæjar, lækka álögur á íbúa og bæta lífsgæði allra íbúa. Þá verður áframhaldandi vinna lögð í sameiningu byggðakjarnanna tveggja í Suðurnesjabæ eftir sameiningu árið 2018.Sérstök áhersla verður lögð á að hefja uppbyggingu íþróttamannvirkja og má
Meirihlutasamstarf S-lista og D-lista undirritað í Suðurnesjabæ

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd