Fjársvikarar nota gervigreindartækni í vaxandi mæli og eftir því sem tækninni fleygir fram aukast möguleikar þeirra við svikin. Dæmi eru um að þeir hringi í fólk úr íslenskum númerum og tali íslensku með hjálp talgervla.Á rúmum mánuði hefur lögreglan fengið tilkynningu um fjársvik sem nema alls nærri tvö hundruð milljónum króna. Dæmi eru um að fjársvikarar hringi úr íslenskum númerum og noti gervigreind til að tala íslensku.„Við erum tiltölulega nýbúin að vara við svokölluðum Microsoft-brotum,“ segir Agnes Ósk Marzellíusardóttir. Þau eru þannig að hringt er í fólk og á línunni er aðili sem segist vera frá Microsoft og að eitthvað sé að tölvu þess sem hringt er í og viðkomandi fenginn til að veita aðgang að tölvunni. Agnes bendir á að til þessa hafi fólk getað áttað sig á að ekki væri allt