Icelandair hefur lagt fram kröfu um að meiðyrðamáli foreldra Sólons Guðmundssonar gegn flugfélaginu verði vísað frá dómi. Munnlegur málflutningur í tengslum við kröfuna fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Þetta staðfestir Sævar Þór Jónsson, lögmaður Guðmundar Þórðarsonar og Rutar Ólafsdóttur, foreldra Sólons.Sólon starfaði sem flugmaður hjá flugfélaginu í sex ár þar til skömmu áður en hann svipti sig lífi þann 25. ágúst 2024, örfáum dögum eftir að hann lét af störfum hjá fyrirtækinu í kjölfar ásakana samstarfskvenna sinna. GERA SÉR GREIN FYRIR BARÁTTUNNI Málið var þingfest í mars á þessu ári og Icelandair lagði fram kröfu um frávísun skömmu síðar. Foreldrar Sólons fara fram á að tvenn ummæli Icelandair um Sólon verði dæmd dauð og ómerk. Ummælin snérust um að Sólon væri hættulegur ör