Þjófnaður í Louvre-safninu í París í Frakklandi, þar sem þjófar stálu ómetanlegum verðmætum á sjö mínútum, verður að kvikmynd. Heimildaþættir eru einnig í bígerð.Franski leikstjórinn Romain Gavras ætlar að leikstýra kvikmyndinni. Hann hefur meðal annars leikstýrt kvikmyndinni Sacrifice frá 2025 og tónlistarmyndböndum. Handritið byggir handritið á bókinni Main basse sur le Louvre eftir þrjá blaðamenn á Le Parisien, Le Monde og Paris Match. Hún kemur út í Frakklandi á morgun.Kvikmyndin er enn í þróun og hefur ekki fengið nafn. Ekki hefur verið upplýst um hverjir leika í henni.Þjófnaðurinn í Louvre-safninu 19. október í fyrra vakti heimsathygli. Innbrotsþjófar, íklæddir gulum vestum eins og iðnaðarmenn, óku vespum og körfubíl meðfram Fracois Mitterand-bryggju við suðurhlið safnsins sem snýr ú