Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingarinnar í Hafnarfirði hefur ákveðið að ráða Þórð Þórarinsson í embætti bæjarstjóra Hafnarfjarðar. Þetta kemur fram í tilkynningu meirihlutans.Þórður er fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.Flokkarnir kynntu í dag nýjan málefnasáttmála. Sáttmálinn og meirihlutasamstarfið verður kynnt nánar á blaðamannafundi í leikskólanum Áshamri í Hamraneshverfi í Hafnarfirði í dag.