Lögreglan var með mikinn viðbúnað eftir að tilkynning barst um skothvell á Kársnesi í Kópavogi í hádeginu á sunnudag og fljótlega á eftir um mann með skotsár sem leitaði aðstoðar í bakaríi í nágrenninu.Lögregla var með mikinn viðbúnað og sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til. „Lögregla náði tiltölulega fljótt utan um vettvang og verkefnið sem slíkt,“ segir Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Rannsókn miði ágætlega. „Hún er á viðkvæmu stigi. Við erum í að safna gögnum og fara yfir þau gögn sem nú þegar er búið að safna,“ segir hann.Maður um fertugt var handtekinn í íbúð í fjölbýlishúsi nærri bakaríinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hafði hann sjálfur samband við lögreglu eftir að skotinu var hleypt af. Sá sem særðist var fluttur á Landsp