Þórarna Gró verður forstjóri HSA fram á haust

Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur sem forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands frá 1. júní til 1. september.Þórarna Gró Friðjónsdóttir.Ljósmynd / StjórnarráðiðGuðjón Hauksson lætur af embættinu um mánaðamótin og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.Þórarna hefur starfað hjá HSA síðustu átta ár, fyrst sem rekstrarstjóri á Egilsstöðum og Vopnafirði en síðustu fjögur ár sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá HSA.Embætti forstjóra HSA verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri stofnunarinnar verði skipaður 1. september.
Þórarna Gró verður forstjóri HSA fram á haust

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd