Hitamet var slegið í Bretlandi annan daginn í röð, þegar 35 stiga hiti mældist á Heathrow-flugvelli og í Kew Gardens í Lundúnum. Fyrra met var slegið í gær þegar 34,8 stiga hiti mældist í Kew Gardens. Þar áður hafði ekki verið svona heitt í maí síðan 1944.Veðurstofa Bretlands tilkynnti um hitametið síðdegis. „Dagurinn í dag er sá heitasti í maí síðan mælingar hófust. Hiti mældist 35 stig á Heathrow og Kew Gardens. Þar til í gær var hitametið í maí 32,8 stig en núna hefur það verið slegið tvo daga í röð um tvær heilar gráður á Celsíus.“Heilbrigðisöryggisstofnun Bretlands hefur gefið út viðvaranir vegna hita á stórum hluta Englands. Þær eru í gildi til 17 á fimmtudag. Viðvaranirnar gefa til kynna auknar líkur á dauðsföllum, sérstaklega meðal 65 ára og eldri. Einnig er varað við álagi á heilb