Úrskurðarnefnd kosningamála hefur hafnað kæru vegna myndbirtingar RÚV af ógildum kjörseðli í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Kjörseðillinn var sýndur í beinni útsendingu Ríkisútvarpsins á kosninganótt. Kærandi fór fram á að kosningarnar yrðu úrskurðaðar ógildar í heild sinni.Í úrskurði nefndarinnar segir meðal annars að kærandi lýsi málsatvikum þannig að á kosninganótt hafi fréttamaður RÚV sýnt mynd af kjörseðli sem talinn var ógildur í beinni útsendingu frá talningarstað Reykjavíkur í ÍR heimilinu. Vísaði kærandi þá til þess að kosningar á Íslandi væru leynilegar og því óheimilt að sýna kjörseðla.Í umsögn yfirstjórnar kemur fram að yfirkjörstjórnin telji að myndbirting af kjörseðlinum í sjónvarpi hafi hvorki falið í sér annmarka né galla á framkvæmd kosninganna. Talning atkvæða ef