Landris og kvikusöfnun heldur áfram við Svartsengi og er áætlað að rúmmál kviku hafi náð 26,6 milljónum rúmmetra frá síðasta eldgosi í júlí í fyrra. Þetta kemur fram í nýjasta hættumati Veðurstofu Íslands.Meðalhraði kvikusöfnunar hefur haldist stöðugur síðustu fjórar vikur og engin marktæk breyting hefur orðið á jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni og við Grindavík.Hætta á meðal annars jarðfalli ofan í sprungu, jarðskjálftum, gosopnun og gasmengun er enn metin töluverð í Grindavík. Hættumat gildir að óbreyttu til 30. júní.Guðmundur Bergkvist