Veitur hafa gert ráðstafanir til að fyrirbyggja litabreytingar í Varmá. Þar verða boraðar fjórar vinnsluholur í umfangsmestu jarðhitaleit Veitna í fimmtíu ár.Upplýsingafulltrúi segir Veitur leggja ríka áherslu á því að tryggja að framkvæmdirnar hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfið og lífríki í grennd við ána.Litamengun setti mark sitt á Varmá í Mosfellsbæ í síðustu viku þegar mulningur komst í mengunarvarnir Veitna. Mengunin barst úr Skammadal þar sem fyrirtækið vinnur að umfangsmikilli jarðhitaleit.Til að bregðast við menguninni hafa Veitur komið upp nýrri miðlægri svarfþró sem nýtist fyrir allar holurnar sem verða boraðar í Skammadal. Hvað er svarfþró? Svarfþró er sérstök gryfja sem notuð er við jarðboranir til þess að safna saman úrgangi. Hana er hægt að nota til að skilja borvökva frá f