Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út til aðstoðar að einbýlishúsi í Salahverfi í Kópavogi rétt eftir miðnætti á laugardagskvöld í stúdentsveislu Verzlinga þar sem á annað hundruð manns voru samankomnir. Fjölmargir þeirra voru óboðnir í partýið og kallaði húsráðandi á lögreglu honum til aðstoðar við að koma gestum út.