Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir umhugsunarvert hversu ríkir fordómar séu gagnvart geðrænum erfiðleikum í samfélaginu. Samtökin telji sig ekki hafa aðra kosti en að selja húsnæði sem átti að nota sem skjólshús fyrir fólk sem glímir við andlega erfiðleika. Íbúar í nágrenninu gáfu skýr skilaboð um að vilja ekki slíka starfsemi í hverfið. ÞJÓNUSTA Á JAFNINGJAGRUNDVELLI Rétt fyrir síðustu áramót gerði Geðhjálp samning við heilbrigðis- og félags- og húsnæðisráðuneytin um að opna skjólshús. Úrræðið er hugsað fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana og markmiðið að bjóða upp á tímabundna dvöl og þjónustu á jafningjagrundvelli.Á nýju ári hófst leit að hentugu húsnæði sem fannst í grónu íbúðahverfi á jaðarlóð við náttúru. Samkvæmt hugmyndafræðinni sem Geðhjál