Utanríkisráðuneyti Írans sakar Bandaríkin um að hafa brotið vopnahlé milli landanna síðustu tvo sólarhringa. Ráðuneytið segir Bandaríkin hafa brotið það í Hormozgan-héraði í suðurhluta landsins, nærri Hormússundi. Reuters greinir frá.„Bandaríkin hafa framið gróft brot á vopnahléinu í Hormozgan-héraði síðustu 48 klukkustundirnar. Íran telur bandarísk stjórnvöld ábyrg fyrir öllum afleiðingum þessara árásargjörnu og óréttmætu aðgerða,“ segir í yfirlýsingu ráðuneytisins.Talsmaður aðgerðarstjórnar Bandaríkjahers segir hann hafa gert árásir á skotmörk í Suður-Íran í gærkvöld. Herinn hafi einnig gert árásir á tvö skip sem voru að koma fyrir tundurduflum.Talsmaður sagði árásirnar hafa verið gerðar í sjálfsvörn til að verja bandaríska hermenn gegn ógnum frá írönskum hermönnum.Íranskir fjölmiðlar gr